Varmahlíðarstjórn auglýsir til sölu leigulóð við Reykjarhólsveg 20b, vestan Reykjarhóls við Varmahlíð. Lóðin er 2.405 m2 og staðsett nyrst í sumarhúsahverfinu.
Lokið er jarðvegsskiptum fyrir sumarhús. Að byggingarreit er lögð rafmagnsheimtaug. Í gegnum lóðina liggja lagnir fyrir heitt og kalt vatn, fráveitulagnir, bakrásarlagnir fyrir affallsvatn hitaveitu og ídráttarrör fyrir gagnaveitulagnir. Heimæðar að væntanlegu húsi fylgja ekki.
Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900