Til sölu er tvíbýlishúsið við Hólmagrund 1, Sauðárkróki. Húsið er alls 224,6 m2, steypt árið 1963.
Á efri hæð í norðurhluta hússins er þriggja herbergja 72,7 m2 íbúð með inngangi um tröppur að austan.
Í suðurhluta hússins og á neðri hæð norðurhluta er 151,9 m2 íbúð. Að sunnan eru 2 herbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Á neðri hæð í norðurhlutanum er rúmgott herbergi, geymsla og þvottahús.
Til greina kemur að selja íbúðirnar sér.
Eigandi óskar eftir tilboðum.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900