Til sölu er íbúð á efri hæð hússins við Barmahlíð 2, Sauðárkróki ásamt bílskúr á jarðhæð. Íbúðin er 153,8 m2 og bílskúr 31,7 m2. Húsið er í góðu ástandi að utan, veggir hraunaðir og þakjárn nýmálað.
Í íbúðinni eru 4 svefnherbergi, stór stofa, sjónvarpshol, baðherbergi, eldhús, þvottahús og búr. Inngangur um tröppur í dúklagða forstofu. Snyrting er við anddyrið.
Mikið útsýni er frá íbúðinni.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks s. 453 5900