Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á efri hæð í húsinu við Aðalgötu 14, Sauðárkróki. Byggingarár 1930.
Undanfarin ár hefur gistiheimili verið rekið á hæðinni og geta húsgögn, rekstur og viðskiptavild fylgt í kaupunum ef vill. Eigendur hafa jafnframt rekið gistiheimili á efri hæð í húsinu við Aðalgötu 10A, Sauðárkróki sem er til sölu og kemur til greina að selja eignirnar saman. Húsnæðið getur nýst sem skrifstofuhúsnæði.
Í íbúðinni eru 5 herbergi, 2 baðherbergi og eldhús.
Ásett verð 33 milj.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453-5900 eða á netfangið [email protected]