Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á efri hæð í húsinu við Aðalgötu 10A, Sauðárkróki. Byggingarár 1958.
Undanfarin ár hefur gistiheimili verið rekið á hæðinni og geta húsgögn, rekstur og viðskiptavild fylgt í kaupunum ef vill. Eigendur hafa jafnframt rekið gistiheimili í Aðalgötu 14, Sauðárkróki sem líka er til sölu og kemur til greina að selja eignirnar saman.
Í íbúðinni eru 4 herbergi, baðherbergi, eldhús og geymsla.
Ásett verð 23 milj.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453-5900 eða á netfangið [email protected]