Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu Skagaveg 12, Skagaströnd.
Fjögurra herbergja íbúð í steyptu parhúsi á einni hæð, alls 105,8 fm., byggt árið 1988.
Leigulóð er 580,2 fm.
Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, baðherbergi. eldhús, stofu, forstofu, þvottahús og geymslu.
Inngangur er í flísalagða forstofu. Við anddyrið er dúklagt þvottahús með vaskaborði og þar inn af geymsla.
Eldhús er parketlagt og upprunaleg viðarinnrétting með viðarborðplötu.
Parketlögð stofa og þar við svalahurð í garð að framan.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og við baðkar, hvít tæki.
Þrjú parketlögð herbergi með skápum.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit um eignina er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Ágúst Guðmundsson löggiltur fasteignasali
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og aðstoðarmaður fasteignasala