Reykjarhólsvegur 4A, Varmahlíð
28.000.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
50 m2
28.000.000
Stofur
1
Herbergi
3
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
2
Byggingaár
2006
Brunabótamat
21.850.000
Fasteignamat
15.000.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar Senda á vin

Lýsing


Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu sumarhús við Reykjarhólsveg 4A í Varmahlíð í Skagafirði.
Sumarhús á einni hæð alls 50 fm, byggt úr timbri árið 2006 ásamt 9 fm. geymsluskúr á lóðinni. 
Snyrtileg eign sem er vel staðsett ofan Varmahlíðar, í vinsælu sumarbústaðarhverfi.
Leigulóðin er 2403 fm., gróðursæl og skjólgóð.


Árið 2019 var húsið klætt að utan með canexel og einangrað á sama tíma.
Steyptir þverbitar eru undir húsinu og sólpalli.

Húsið skiptist í tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi og forstofu.
Gengið er inn í forstofu að sunnan.
Stofa og eldhús er parketlagt. Máluð viðarinnrétting.
Tvö góð svefnherbergi.
Baðherbergi með sturtuklefa, hvítri innréttingu og tækjum. Hurð frá baðherbergi og á sólpall.
Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi þar sem er dúkur.
Geymsluskúr um 4-5 fm. er vestan við húsið. Skúrinn var kæddur og einangraður árið 2019.
Góður sólpallur sunnan og vestan við hús. Vestan við húsið er heitur pottur. 
Innbú getur fylgt.

Varmahlíð er byggðakjarni staðsettur við þjóðveg 1 og með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug, söluskáli, hótel, bensínstöð, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Í Varmahlíð er barnvæn sundlaug með rennibrautum, heitum potti og gufubaði, sparkvöllur, körfuboltavöllur og ærslabelgur er staðsettur á tjaldsvæðinu. Fjölbreyttar gönguleiðir eru í Varmahlíð og nágrenni og er t.a.m. gaman að ganga um í skógræktinni á Reykjarhólnum þar sem sumarhúsið er staðsett.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali




Senda fyrirspurn vegna

Reykjarhólsvegur 4A

CAPTCHA code


Sunna Björk Atladóttir
Lögmaður og löggiltur fasteignasali