Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Bogabraut 17, Skagaströnd ásamt lóðarréttindum.
Fimm herbergja steypt einbýlishús á einni hæð með bílskúr, byggt árið 1974. Sólskáli er byggður árið 1986.
Birt stærð fasteignarinnar er 189,4 fm., þar af 31,5 fm bílskúr og 19,8 fm. sólskáli. Leigulóð hússins er 750 fm.
Góð staðsetning.
Snyrtileg eign og vel við haldið.Árið 2020 voru miðstöðvar- og vatnslagnir allar endurnýjaðar. Þá voru ný gólfefni lögð á nánast allt húsið og nýjar innréttingar og tæki í eldhúsi, baðherbergi og snyrtingu.Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús, búr, sólskála og bílskúr.
Gengið inn í flísalagða
forstofu frá Bogabraut. Í forstofu er fatahengi.
Við forstofu er
snyrting sem nýlega hefur verið innréttuð. Flísar á gólfi og veggjum, hvít tæki og vaskaskápur.
Stofa er parketlögð.
Flísalögð
sólstofa við stofu.
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað. Hvít innrétting með dökkri borðplötu. Induction helluborð og Electrolux bakaraofn.
Við eldhús er
þvottahús og búr/geymsla. Gólf þvottahúss er flísalagt, innrétting og skápar.
Baðherbergi hefur allt nýlega verið endurnýjað. Gólf og veggir flísalagt, hvít tæki, sturta og handklæðaofn. Hvít innrétting undir vask og skápur bak við hurð.
Fjögur herbergi, öll parketlögð og fataskápar í tveimur þeirra.
Bílskúr er fullfrágenginn.
Nýlegur garðskúr framan við húsið.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali