Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu veitingastaðinn Harbour restaurant&bar á Skagaströnd.Harbour restaurant&bar er staðsettur á Skagaströnd í gömlu iðnaðarhúsnæði á höfninni þar sem hjarta bæjarins slær. Þar má upplifa taktinn í bryggjulífinu og fylgjast með þegar bátar leggjast að og landa afla dagsins.
Húsnæðið er 151,3 fm og skiptist í veitingasal, rúmgott eldhús, starfsmannaaðstöðu og tvær snyrtingar. Veitingasalurinn er huggulega innréttaður með vönduðum húsgögnum og stórum bar. Skemmtileg lýsing er í veitingasalnum og gott hljóðkerfi. Útisvæði með 40 fm steyptri verönd. Gólfhiti er í öllu húsinu og gott loftræstikerfi.
Húsnæðið Hafnarlóð 7, sem er gamalt iðnaðarhúsnæði, var allt endurnýjað 2020-2021. Það sem er nýtt er þak, gólf, gluggar, hurðir, lagnir, frárennsli og rafmagn.
Heimasíða: www.harbour.is
Facebooksíða: https://www.facebook.com/harbour545
Instagram: https://www.instagram.com/harbourrestaurantandbar/
Möguleiki á að taka eign á Höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri upp í kaupverðið.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali