Fornós 10, 550 Sauðárkrókur
Tilboð
Einbýli
6 herb.
202 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1971
Brunabótamat
86.550.000
Fasteignamat
65.000.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Fornós 10, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Sex herbergja, hlaðið einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr alls 202,3 fm. og byggt árið 1971. 
Íbúðarhúsið er 166,6 fm. og bílskúr 35,7 fm.
Leigulóð hússins er 767,5 fm.
Fasteignin er vel staðsett með tilliti til þjónustu, þ.e. skóli, verslun, íþróttasvæði o.þ.h. 


Fasteignin skiptist í 5 herbergi, stofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er flísalögð. 
Stofa er parketlögð og snúa gluggar til norðurs. 
Í eldhúsi er ljós innrétting með grárri borðplötu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. Parket á gólfum. Siemens eldavél og vifta.
Herbergi eru fimm talsins og parketlögð fyrir utan eitt sem er flísalagt.
Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað. Gólf er flísalagt og með gólfhita, Fibo-plötur á veggjum. Hvít innrétting við vask og speglaskápur fyrir ofan. Handklæðaofn.
Sjónvarpshol er parketlagt.
Þvottahús er með flísum á gólfi og inn af því er lítil geymsla. Hurð er út í garð á bak við hús frá þvottahúsi. Hurð í þvottahúsi er óþétt.

Í bílskúr er gólf steypt. Eftir er að klæða upp í loft. 
Tengingar fyrir vatn til staðar. Rafknúin hurð.

Hellulögð stétt er framan við húsið en plan er malarborið.
Góður afgirtur pallur er í garði og heitur pottur.
Steypt plata er í norðvesturhorni í garði. 
Leiktæki og garðskúr fylgja.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.