Austurgata 26, 565 Hofsós
52.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
123 m2
52.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
61.700.000
Fasteignamat
21.950.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Austurgötu 26, Hofsósi ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.
Fimm herbergja steypt einbýlishús á einni hæð, alls 123 fm. og byggt árið 1976.
Leigulóðin er 824 fm. 
Mjög stutt er í ýmsa þjónustu s.s. skóla, leikskóla, íþróttavöll, sundlaug og verslun.
Snyrtileg eign með útsýni.


Fasteignin skiptist í 4 herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, forstofu, þvottahús og tvær geymslur. 
Gengið inn í dúklagða forstofu og þar við er dúklögð gestasnyrting.
Eldhús er rúmgott og var endurnýjað árið 2011. Hvít innrétting með dökkri borðplötu. Gorenje eldavél. Amica vifta. Ísskápur getur fylgt. 
Inn af eldhúsi er þvottahús með máluðu gólfi og þar við eru tvær geymslur
Í þvottahúsi er vaskur og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Útgangur á bílaplan frá þvottahúsi.
Stofa er parketlögð snýr til suðurs. Frá stofu er gengið í sólstofu og þaðan út á sólpall sem gerður var árið 2023. 
Við stofu er eitt herbergi sem er parketlagt.
Sólstofa er flísalögð og með gólfhita. 
Góður innbyggður skápur er á gangi gengt forstofu og annar innbyggður skápur er við herbergisgang.
Þrjú herbergi eru við herbergisgang og tvö þeirra með skápum.
Baðherbergi var gert upp árið 2018. Þá var voru lagnir endurnýjaðar, lagður gólfhiti og gólf og veggir flísalagðir. Góð viðarinnrétting við vask, sturta og handklæðaofn.

Að utan er húsið almennt í góðu ástandi og hefur fengið gott viðhald. 
Þak var málað fyrir um 2 árum og húsið málað fyrir um 3-4 árum. 
Stétt er framan við innganga eru steyptir.
Sólpallur í garði var byggður 2023.
Vestan við sólstofu er hellulögð verönd.

Hofsós er lítið kauptún við austanverðan Skagafjörð með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug, bensínstöð, verkstæði, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Útsýni er yfir eyjar Skagafjaðar er einstaklega fallegt og stutt er í fallega náttúru og útivist.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.