Skagfirðingabraut 39, 550 Sauðárkrókur
59.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
166 m2
59.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1958
Brunabótamat
68.260.000
Fasteignamat
45.450.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á efri hæð í fasteigninni við Skagfirðingabraut 39, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr, alls 166,1 fm. 
Íbúðin er skráð 140,5 fm. og er húsið byggt árið 1958. Bílskúr er skráður 25,6 fm. og byggður 1970.
Leigulóð hússins er sameiginleg og alls 672 fm.
Eignin er vel staðsett en stutt er í ýmsa þjónustu á borð við verslun, skóla, leikskóla, íþróttahús, íþróttavöll ofl. 


Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, geymslu, stigagang og forstofu.
Komið er í flísalagða forstofu á neðri hæð. Sérinngangur er í íbúðina. 
Stigi upp í íbúðina er dúklagður. Frá honum er komið á parketlagðan stigapall þar sem er setkrókur.
Í eldhús er hvít upprunaleg innrétting. Ný Gorenje eldavél. 
Við eldhús er svo rúmgott þvottahús og geymsla.  Vaskaborð er í þvottahúsi.
Stofa er parketlögð og frá henni eru vestursvalir.
Herbergisgangur er parketlagður. Þar við eru þrjú rúmgóð herbergi og baðherbergi. Skápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi var endurnýjað 2023, flísar á veggjum og gólfi, walk in sturta og svört innrétting við vask. 

Bílskúr þarfnast viðhalds. 

Húsið var klætt að utan árið 2015, nema bílskúr. 
Plan er malarborið og steyptar tröppur eru að inngangi að framan.
Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar frá húsi og í brunn.
Kaldavatnsinntak er nýtt.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.