Lækjargata 9, 530 Hvammstangi
57.000.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
157 m2
57.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1964
Brunabótamat
69.700.000
Fasteignamat
33.450.000

Fasteignin við Lækjargötu 9, Hvammstanga ásamt tilheyrandi lóðarréttindum. 
Fimm herbergja steypt einbýlishús á pöllum alls 157 fm. og byggt árið 1964.
Leigulóð hússins er 662 fm. 


Húsið hefur verið mikið endurnýjað:
2022 - Múrviðgerðir og það málað.
2020 - Gólfhiti settur í forstofu og forstofa og hol endurnýjað.
2020 - Þakjárn og þakrennur endurnýjað.
2019 - Ný hitaveitugrind, nýjir ofnar, nýjar miðstöðvarlagnir og neysluvatnslagnir.
2016 - Sólpallur
2012 - Gler og opnanleg fög endurnýjuð. 
2012 - Nýjar útihurðir 
2005 - Baðherbergi endurnýjað.
Búið er að draga nýtt rafmagn í að hlusta, þ.e. eldhús, stofu, 2 herbergi og baðherbergi.


Fasteignin skiptist í 3-4 herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Komið er í flísalagða forstofu. Í forstofu er fatahengi og handklæðaofn. Hol er flísalagt og þar eru skápar.
Stofa er parketlögð. Gluggar í stofu snúa til suðurs.
Eldhús er parketlagt, viðarinnrétting með grárri borðplötu. Siemens eldavél og Zanussi vifta. Gott skápapláss er í eldhúsi og flísar á milli efri og neðri skápa.
Frá holi er gengið upp nokkrar tröppur og komið á parketlagðan herbergisgang
Við ganginn eru þrjú rúmgóð herbergi auk baðherbergis.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting með dökkri borðplötu, handklæðaofn og sturtu.
Herbergi eru rúmgóð. Skápar í herbergjum fylgja.
Frá holi er svo gengið niður í kjallara. Gólf í kjallara er málað. 
Í kjallara er þvottahús, herbergi/geymsla og bílskúr. 
Í þvottahúsi er vaskaborð með grárri borðplötu og hurð út í garð að norðan. 
Í bílskúr er vinnuborð og málað gólf.

Ljósleiðari er lagður í húsið.
Framan við húsið er steypt stétt og tröppur.
Gamlar rakaskemmdir eru sjáanlegar í þvottahúsi sem þarf að sparsla og mála.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.