Jóngrund , 565 Hofsós
Tilboð
Einbýli
3 herb.
50 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1900
Brunabótamat
20.050.000
Fasteignamat
10.500.000

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Jóngrund á Hofsósi ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Einbýlishús á einni hæð, alls 50,7 fm.
Húsið var byggt árið 1900 en var allt endurnýjað á árunum 2000-2003.
Leigulóð hússins er 750 fm.
Gott útsýni er frá eigninni.


Fasteignin er í góðu ástandi að utan sem innan. 
Á árunum 2000-2003 var eignin öll endurnýjuð. 
Húsið var klætt og einangrað að utan, þak, gluggar og hurðir endurnýjað, allar lagnir endurnýjaðar og allt innanstokks. 

Fasteignin skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og gang. 
Komið er í dúklagða forstofu/gang.
Við ganginn er stofa, herbergi og baðherbergi. 
Stofa og herbergi er bæði teppalagt. Einn gluggi í stofu lekur.
Baðherbergi er dúklagt. Eftir er að klæða veggi við sturtuna. Sturta hefur því ekki verið í notkun.
Eldhús er dúklagt, hvít innrétting með grárri borðplötu. Delonghi eldavél. 
Inn af eldhúsi er teppalagt herbergi.

Hofsós er lítið kauptún við austanverðan Skagafjörð með fjölbreytt framboð þjónustu. Þar eru m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug, bensínstöð, verkstæði, matvöruverslun og veitingaþjónusta. Útsýni er yfir eyjar Skagafjaðar er einstaklega fallegt og stutt er í fallega náttúru og útivist.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.