Fasteignin Faxatorg, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum.
Um er að ræða skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum alls 1272,1 fm.
Aðalbyggingin var byggð árið 1966 og viðbygging 1996-1997 og er með þrjú fastanúmer; 2131482, 2251789 & 2238559.
Húsið er vel staðsett og stutt í ýmsa þjónustu.Í húsinu eru leigð út skrifstofurými og eru flest rými í útleigu.
Bílastæði sunnan við húsið fylgir.
Fyrir liggur ástandsmat VSÓ ráðgjafar framkvæmt í desember 2023.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali