Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Freyjugötu 32, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Tveggja herbergja íbúð á tveimur hæðum í parhúsi með sérinngangi, alls 63,1 fm.
Í húsinu eru tvær aðrar íbúðir en þessi íbúð er staðsett í norðurhluta hússins.
Leigulóð fasteignarinnar er 400.Fasteignin skiptist þannig að á neðri hæð er svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofa og hol. Á efri hæð er stofa og eldhús.Komið er í flísalagða
forstofu og á neðri hæð.
Frá forstofu er komið í flísalagt
hol. Þar við er
svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Svefnherbergi er parketlagt og með stórum skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, með flísalagðri sturtu og hvítri innréttingu við vask.
Þvottahús er með máluðu gólfi, vaskaborði og hillum.
Hringstigi er frá holi og til efri hæðar.
Stofa er parketlögð og rúmgóð. Frá stofu er gengið út á svalir á vesturhlið.
Eldhús er parketlagt, innrétting er máluð og borðplata grá.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali