Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á neðri hæð í fjölbýlishúsinu við Geitagerði 2, Hólum í Hjaltadal, Skagafirði ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð (merkt 104) með sérinngangi í fjölbýlishúsi, steyptu árið 2003. Íbúðin er 49,4 fm.
Í fjölbýlishúsinu eru alls 8 íbúðir.
Leigulóð hússins alls er 1222 fm.
Gott útsýni er frá íbúðinni. Íbúðin skiptist í eitt svefnherbergi, eldhús og stofu í sama rými, baðherbergi, forstofu, þvottahús og geymslu.Forstofa er með dúk á gólfi og fatahengi.
Við forstofu er
þvottahús með dúk á gólfi og vaskaborði. Inn af því er
geymsla með hillum á veggjum.
Svefnherbergi er dúklagt og með fataskáp.
Baðherbergi er dúklagt, upphengt salerni og sturta.
Eldhús og stofa í sama rými, dúkur á gólfi. Upprunaleg eldhúsinnréttingu með bakaraofni, helluborði, viftu og tengi fyrir ísskáp. Úr stofu er útgengi á vestursvalir.
Bílastæði er norðan við húsið.
Sérinngangur til íbúðarinnar er á austurhlið hússins.
Í geymslu eru rakaskemmdir í gólfdúk.
Fasteignin afhendist í núverandi ástandi. Eigandi mælir sérstaklega með því að eignin sé skoðuð með fagmönnum. Ekki er virkt húsfélag í húsinu.
Hólar er byggðakjarni staðsettur í Hjaltadal í Skagafirði. Hólar eru einn sögufrægasti staður Íslands og biskupssetur um aldir. Á Hólum er leikskóli og Háskólinn á Hólum. Hólaskóli sérhæfir sig í ferðamálafræðum, hrossarækt og reiðmennsku, auk fiskeldis og fiskalíffræði. Fjölbreyttar gönguleiðir eru á Hólum og í nágrenni.
Frá Hólum er stutt á Hofsós og Sauðárkrók.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali