Geymsluhúsnæðið við Borgarflöt 9, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarleiguréttindum.
Um er að ræða 100 fm. geymslubil í nýbyggðu stálgrindarhúsi á einni hæð en alls eru 12 geymslubil í húsnæðinu.
Steyptur sérafnotaflötur er framan við hvert geymslubil. Að öðru leyti er lóðin malarborin.
Möguleiki er að koma fyrir salernisaðstöðu í rýminu.Lofthæð er góð og möguleiki er að gera milliloft.
Það er ekki komið inn brunabótamat.
Nánari upplýsingar og söluyfirlit hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið [email protected]
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali