Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Bogabraut 17, Skagaströnd ásamt lóðarréttindum.
Fimm herbergja steypt einbýlishús á einni hæð með bílskúr, byggt árið 1974. Sólskáli er byggður árið 1986.
Birt stærð fasteignarinnar er 189,4 fm., þar af 31,5 fm bílskúr og 19,8 fm. sólskáli. Leigulóð hússins er 750 fm.
Góð staðsetning.
Snyrtileg eign og vel við haldið.Árið 2021 voru miðstöðvar- og vatnslagnir allar endurnýjaðar. Þá voru ný gólfefni lögð á nánast allt húsið og nýjar innréttingar og tæki í eldhúsi, baðherbergi og snyrtingu.
Árið 2025 var skipt um járn og hluta af timbri á þaki.Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús, búr, sólskála og bílskúr.
Gengið inn í flísalagða
forstofu frá Bogabraut. Í forstofu er fatahengi.
Við forstofu er
snyrting sem nýlega hefur verið innréttuð. Flísar á gólfi og veggjum, hvít tæki og vaskaskápur.
Stofa er parketlögð.
Flísalögð
sólstofa við stofu.
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað. Hvít innrétting með dökkri borðplötu. Electrolux eldhústæki, spanhelluborð og innbyggð uppþvottavél.
Við eldhús er
þvottahús og búr/geymsla. Gólf þvottahúss er flísalagt, innrétting og skápar.
Baðherbergi hefur allt nýlega verið endurnýjað. Gólf og veggir flísalagt, hvít tæki, sturta og handklæðaofn. Hvít innrétting undir vask og skápur bak við hurð.
Fjögur herbergi, öll parketlögð.
Bílskúr er fullfrágenginn.
Nýlegur garðskúr framan við húsið.
Í lögum um fasteignakaup er lögð áhersla á skoðunarskyldu kaupanda. Væntanlegir kaupendur eru hvattir til að kynna sér ástand eignarinnar vandlega og afla sér aðstoðar sérfræðinga við frekari skoðun sé þess þörf að þeirra mati. Sú áhætta fylgir kaupum á fasteignum að ekki er hægt að átta sig á ástandi á þeim hlutum eignarinnar sem ekki sjást við venjulega skoðun svo sem fráveitu-, vatns- og miðstöðvarlögnum svo og þaki eftir atvikum.